Enn finnast líkamsleifar

AFP

Enn finnast líkamsleifar við flak skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, en kafarar hafa leitað líka tveggja einstaklinga sem hafa ekki fundist síðan skipið strandaði á síðasta ári eftir að skipinu var komið á réttan kjöl nýlega. Unnið er að því að greina líkamsleifarnar.

Fyrir viku síðan fundust líkamsleifar við flakið, en merkilegt þótti að leifarnar hefðu fundist í sjónum eftir allan þennan tíma.

Frétt mbl.is: Fundu líkamsleifar við flakið.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert