Gekk í skrokk á henni í hvert skipti

Michelle Knight, ein þriggja kvenna sem strætóbílstjórinn Ariel Castro rændi, …
Michelle Knight, ein þriggja kvenna sem strætóbílstjórinn Ariel Castro rændi, pyntaði og nauðgaði í um áratug á heimili sínu í Ohio AFP

Michelle Knight, ein þriggja kvenna sem strætóbílstjórinn Ariel Castro rændi, pyntaði og nauðgaði í um áratug á heimili sínu í Ohio, segist hafa verið þvinguð til að hjálpa Castro að undirbúa klefa fyrir hinar konurnar.

Frá þessu greindi Knight í löngu viðtali við Dr. Phil, en hún var fyrsta fórnarlamb mannsins. Segist hún hafa séð auglýsingar í sjónvarpi vegna hvarfs DeJesus, en hún var fjórtán ára þegar Castro rændi henni. Um það leiti lét hann Knight undirbúa nýjan klefa.

„Ég heyrði hluti brotna og ég heyrði einhvern öskra, farðu af mér, farðu af mér,“ sagði Knight. „Ég heyrði stúlku kalla á hjálp og enginn kom henni til hjálpar.“ Castro sagði Knight að DeJesus væri dóttir hans sem væri aðeins í heimsókn. Hún vissi þó að það var ekki satt.

„Ég þurfti að hjálpa honum að bora holur í vegginn svo hægt væri að festa keðjur sem hann notaði til að krækja okkur saman,“ sagði Knight.

Knight sagði einnig að hún hefði að minnsta kosti fimm sinnum orðið ólétt þegar hún dvaldi á heimili Castro. Í hvert skipti gekk hann í skrokk á henni þar til hún missti fóstrið.

Frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert