Lést við leit að jólaskrauti

Jólaljós í London.
Jólaljós í London. AFP

Þrettán ára bresk stúlka lét lífið er hún var að aðstoða föður sinn við að leita að jólaskrauti uppi á háalofti heimilis þeirra í Suður-Wales. Stúlkan hélt í stiga úr málmi sem snerti rafmagn með þeim afleiðingum að rafstraumur fór um og stúlkan fékk raflost.

Stúlkan átti sex systkini. Slysið varð á laugardag. Lögreglan rannsakar nú tildrög þess.

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert