Sýna handtöku Jang Song Thaek

Stjórnvöld í N-Kóreu hafa birt mynd sem sýnir þegar Jang Song Thaek er handtekinn. Handtakan átti sér stað á fjölmennum fundi með helstu áhrifamönnum í Kommúnistaflokknum. 

Jang er mágur Kim Jong-un, leiðtoga N-Kóreu og var áður helsti aðstoðarmaður hans.

Ríkissjónvarpið í N-Kóreu, sem reglulega sýnir myndir af leiðtoga landsins, er búið að yfirfara myndefni sitt og þurrka Jang út af öllum myndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert