48% Svía vilja að konungurinn segi af sér

Karl Gústaf, Svíakonungur.
Karl Gústaf, Svíakonungur.

48% Svía vilja að Karl Gústaf Svíakonungur segi af sér og að dóttir hans, Viktoría, taki við sem þjóðhöfðingi Svíþjóðar. Aðeins 39% vilja að konungurinn haldi áfram að gegn stöðu sinni.

Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Ipsos-stofnunin gerði fyrir dagblaðið Dagens Nyheter. Samkvæmt könnuninni vilja aðeins 64% að Svíþjóð verði áfram konungdæmi. Árið 2010 voru um 70% hlynntir konungdæminu. Þeir sem yngri eru eru andsnúnari konungdæminu en þeir sem eldri eru.

Karl Gústaf hefur verið konungur í Svíþjóð í 40 ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert