Báðar liðskonur Pussy Riot lausar úr fangelsi

Önnur liðskona Pussy Riot, Nadezhda Tolokonníkova, hefur einnig verið látin laus úr fangelsi en fyrr í morgun var félagi hennar María Aljokhína látin laus úr. Þær fengu báðar sakaruppgjöf í Rússlandi í síðustu viku.

Aljokhína og Tolokonníkova voru dæmdar í tveggja ára vistun í fangabúðum fyrir óspektir í kirkju í Moskvu í febrúar 2012 þegar þær efndu til mótmæla gegn Vladímír Pútín forseta.

Nadezhda Tolokonníkova,
Nadezhda Tolokonníkova, AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert