Vilja koma í veg fyrir dauðarefsingu

Dzhokhar Tsarnaev.
Dzhokhar Tsarnaev.

Bandaríska alríkislögreglan FBI reyndi að fá Tamerlan Tsarnaev, sem stóð að sprengjutilræðinu í Boston-maraþoninu í apríl á síðasta ári ásamt bróður sínum Dzhokhar, til þess að afla upplýsinga um samfélag múslima og Tétsena í Bandaríkjunum. Þessu halda verjendur Dzhokhars Tsarnaevs fram en bróðir hans féll fyrir skotum lögreglu í kjölfar tilræðisins.

Bandarísk stjórnvöld hafa krafist dauðarefsingar yfir Dzhokhar Tsarnaev en þrír létu lífið í sprengjutilræðinu og um 260 særðust. Verjendur hans kröfðust þess að allar upplýsingar um möguleg samskipti hans og bróður hans við FBI yrðu upplýst. Fram kemur í fréttinni að FBI hafi að sögn verjenda Dzhokhars Tsarnaevs yfirheyrt Tamerlan vegna netnotkunar hans og í kjölfarið beðið hann að gerast uppljóstrari.

Verjendurnir telja að tengsl kunni að vera á milli þess og ákvörðunar bræðranna að skipuleggja sprengjutilræðið. Fram kemur í fréttinni að FBI hafi áður lýst því yfir að bræðurnir hafi aldrei verið uppljóstrarar fyrir stofnunina né hafi þeir verið beðnir um það. Þá segir að markmið verjendanna sé að forða Dzhokhar Tsarnaev frá dauðarefsingu með því að draga upp þá mynd að bróðir hans hafi verið aðalmaðurinn á bak við tilræðið.

Formleg réttarhöld yfir Dzhokhar Tsarnaev hefjast í nóvember. Hann hefur neitað sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert