Flaggaði óvart í hálfa stöng

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Norden.org

Nanda Maria Maack flaggaði norska fánanum í hálfa stöng við kirkjuna í bænum Vogsey í Noregi á föstudeginum langa í gær. Bæjarbúum brá heldur betur í brún enda tíðkast ekki að flagga með þessum hætti í Noregi á föstudeginum langa.

„Ég gerði það vegna þess að ég er vön því. Ég hélt að sama hefðin væri á Íslandi og í Noregi þar sem við tilheyrum sömu kirkju,“ sagði hún í samtali við norska ríkisútvarpið, sem greinir frá málinu.

„Föstudagurinn langi er alvarlegur dagur og ég hringdi einnig kirkjuklukkunum eins og ég geri alltaf við jarðarfarir. En ég komst fljótlega að því að það var einungis kirkjan í Syðri Vogsey sem hafði flaggað í hálfa stöng,“ bætir hún við.

Þá segir í fréttinni að ýmsir bæjarbúar hafi spurt hana hvort hún hefði nokkuð gleymt fánanum eða hvort henni hefði ekki tekist að koma honum alla leið upp.

Föstudagurinn langi er aðeins fánadagur á Íslandi og í Færeyjum. Páskadagur er hins vegar fánadagur í Noregi.

Sóknarpresturinn Dag Audun Rasmussen sagðist hafa tekið vel í þessa nýjung. „Ég hef skoðað málið á netinu og komist að því að í gamla daga var algengt að flagga í hálfa stöng fyrir utan norskar kirkjur,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert