Öflugur jarðskjálfti varð í morgun á Kyrrahafi skammt frá eyjunni Nýju Kaledóníu.
Skjálftinn var 6,7 og átti upptök sín um 397 kílómetra austnorðaustur af höfuðstað Nýju Kaledóníu Noumea á um 117 kílómetra dýpi samkvæmt frétt AFP.
Ekki barst viðvörun um að hann hefði valdið flóðbylgju.