Var látin þegar sjúkrabílinn kom

Yara var aðeins átta ára.
Yara var aðeins átta ára. Skjáskot af Expressen

Móðurbróðir Yöru, átta ára stúlku frá Palestínu sem lést á sjúkrahúsi í Karlskrona í Suður-Svíþjóð í vikunni, kom fyrir dómara ásamt eiginkonu sinni í dag.

Þau eru bæði grunuð um að hafa valdið dauða stúlkunnar og hafa þau setið í gæsluvarðhaldi frá 1. maí sl. Fólkið neitar sök í málinu.

Segist vera saklaus

„Ég gerði það ekki,“ sagði konan í dómsalnum í dag, brostinni röddu. Hún klæddist svartri hettupeysu og grét. Maðurinn hafði aftur á móti jakka yfir höfðinu þegar hann kom í  dómsalinn. Gæsluvarðhald yfir fólkinu hefur verið framlengt til 16. maí nk.

Pernilla Åström, saksóknari í málinu, segir að Yara hafi líklega verið látin þegar sjúkraflutningamenn komu að heimili hennar í Karlskrona í síðastliðið miðvikudagskvöld. Áður hefur komið fram að hún hafi verið úrskurðuð látin á sjúkrahúsi. 

Åström staðfesti að margvíslegir áverkar hefðu verið á líki stúlkunnar. Hún vildi aftur á móti ekki staðfesta að eldri áverkar hefðu fundist á stúlkunni.

Kom ein til Svíþjóðar frá Palestínu

Líkt og mbl.is hefur greint frá virðist ekki hafa verið hugsað nógu vel um stúlkuna litlu. Hún fannst stórslösuð íbúð í Karlskrona og var úrskurðurð látin á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Stúlk­an kom ein til Svíþjóðar í fyrra sem flóttamaður frá Palestínu. Til stóð að for­eldr­ar stúlk­unn­ar myndu einnig flytja til Svíþjóðar til að dvelja hjá dótt­ur sinni og hafði beiðni þess efn­is verið send sænsk­um yf­ir­völd­um.

Nágrannar stúlkunnar höfðu tekið eftir því að hún var stundum illa klædd, þrátt fyrir að kalt væri úti. Hún var stundum ein með tveggja ára dreng og ungbarn, þrátt fyrir að vera aðeins sjö og síðan átta ára. Þá haltraði hún og virtist vera með áverka á fótunum.

Ekki liggur fyrir hvaða áverka Yara litla hafði þegar hún var flutt með hraði á sjúkrahús í vikunni. Þó er ljóst að konan og maðurinn, bæði um þrítugt, verða í gæsluvarðhaldi næstu vikur, grunuð um að hafa valdið dauða stúlkunnar.

Fréttir af mbl.is

„Og nú er hún dáin“

Heyrði af and­lát­inu á Face­book

Skil­in eft­ir með tvö lít­il börn

Par í haldi vegna stúlku­morðs í Svíþjóð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert