Frakkar vilja smærra ESB

Frakkar vilja að ESB verði smækkað.
Frakkar vilja að ESB verði smækkað. mbl.is/afp

Ný skoðanakönnun í Frakklandi gefur til kynna, að franskir kjósendur vilji að Evrópusambandið (ESB) verði smækkað í sniðum.

Könnunin var gerð af stofnuninni Viavoice fyrir blaðið Liberation og þar kemur fram, að 64% Frakka vilja að ESB verði einskorðað við ríkjakjarna, svo sem evruríkin eða stofnríki sambandsins; Frakkland, Þýskaland, Ítalíu, Holland, Belgíu og Lúxemborg.

Aðeins 20% lýstu sig sátt við sambandið eins og það er í dag og einungis 7% eru fylgjandi frekari stækkun þess.

Alls 49% tengdu ESB við eitthvað neikvætt en 45% sögðu sambandið táknrænt fyrir eitthvað jákvætt.

Hins vegar vildu aðeins 28% að Frakkar yfirgæfu ESB og 60% sögðust því andvíg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert