Leita á afmörkuðu svæði

Lögreglan leitar nú Madeleine McCann í Praia da Luz.
Lögreglan leitar nú Madeleine McCann í Praia da Luz. AFP

Lundúnalögreglan, Scotland Yard, notar sporhunda á nýju leitarsvæði í Praia da Luz við leitina að Madeleine McCann.

Lögreglan hefur leitað á svæði á sumarleyfisstaðnum, þaðan sem stúlkan hvarf árið 2007, í nokkra daga. Nú hefur svæðið verið afmarkað enn frekar. Nýja leitarsvæðið er við veg sem liggur frá Praia da Luz til bæjarins Lagos, í grennd við vatnshreinsistöð, segir í frétt Sky um málið. Þar kemur fram að portúgalska lögreglan hafi fengið ábendingu í morgun um að leita á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert