Minnast aldarafmælis stríðsins

Hollande og Gauck - Forsetar ríkjanna tveggja við minningarathöfn í …
Hollande og Gauck - Forsetar ríkjanna tveggja við minningarathöfn í dag. AFP

Forsetar Þýskalands og Fraklands minnast þess í dag að hundrað ár eru liðin síðan Þýskaland sagði Frakklandi stríð á hendur hinn söguríka dag 3. ágúst 1914. Forsetarnir Francois Hollande og Joachim Gauck voru viðstaddir sameiginlega minningarathöfn í Elsass héraði til heiðurs hermanna sem féllu í heimsstyrjöldinni fyrri.

Þar hófu þeir formlega byggingu nýs minnisvarða í Vieil Armand kirkjugarði. Vieil Armand, eða Hartmannswillerkopf á þýsku, er tindur í Elsass héraði sem var heiftarlega  barist um í fyrri heimsstyrjöld, og kostuðu átökin um 30 þúsund menn lífið. Um 12 þúsund óþekktir hermenn eru grafnir í kirkjugarðinum sem þar er nú.

Á mánudaginn verða sambærilegir viðburðir haldnir í Belgíu til að minnast stríðsyfirlýsingar Bretlands Þýskalandi á hendur. Forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, tekur þátt í athöfn til minningar um daginn sem Bretland fór í stríð.

Hollande og Gauck hafa vottað þeirri fórn sem hermennirnir í Vieil Armand færðu og fagnað mikilvægi þess samstarfs sem Frakkland og Þýskaland njóta í dag. Minnisvarðinn, sem þeir lögðu drög að í dag, mun einnig þjóna sem sýningarrými um styrjöldina, sem opnar 2017.

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins, BBC, greinir frá þessu. 

Vieil Armand eða Hartmannswillerkopf - Hart var barist um tindinn …
Vieil Armand eða Hartmannswillerkopf - Hart var barist um tindinn í stríðinu, en nú er kirkjugarður og minnisvarði þar sem áður var blóðugur orrustuvöllur. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert