Enn finnst ekkert í skerjagarðinum

Sænski herinn leitar enn að óþekkta kafbátnum í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm, samkvæmt fréttum sænskra fjölmiðla í dag.

Samkvæmt frétt Dagens Næringsliv er flugbann undir 1.300 metrum enn í gildi og umferð báta takmörkuð. Yfirmaður hersins mun tjá sig um leitina í hádeginu í dag.

Líkt og fram hefur komið er helst talið að leitin beinist að rússneskum kafbáti en rússnesk yfirvöld segja að það sé ekki rétt þar sem enginn rússneskur kafbátur sé á þessum slóðum. Þetta er fimmti dagurinn í röð sem þessa dularfulla sjófars er leitað. 

Um er að ræða viðamestu aðgerð sænska hersins á þessum slóðum í langan tíma en sovéskur kafbátur, búinn kjarnorkuvopnum, strandaði árið 1981 skammt frá Gautaborg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert