Yfirgefur Twitter vegna áreitni

Sarah Payne var aðeins 8 ára þegar hún var myrt …
Sarah Payne var aðeins 8 ára þegar hún var myrt af barnaníðingnum Roy Whiting. Wikipedia

Stjórnmálakonan Sara Payne, móðir Söru Payne sem var numin á brott og myrt árið 2000, hefur neyðst til að loka aðgangi sínum á Twitter vegna ítrekaðrar áreitni. Áreitið er sagt tengjast morði dóttur hennar, ekki framboði hennar.

Áreitið hefur reyndar verið viðvarandi alla tíð síðan dóttir hennar hvarf, í gegnum hina ýmsu samfélagsmiðla. Sara yngri var myrt nærri heimili afa hennar og ömmu í West Sussex. Barnaníðingurinn Roy Whiting hlaut lífstíðardóm fyrir morðið á stúlkunni.

Skilaboðin sem Sara eldri hefur fengið að undanförnu tengjast þó frekar fyrrverandi eiginmanni hennar og föður Söru, Michael, sem fannst látinn á heimili sínu í síðasta mánuði. Hann glímdi við þunglyndi og áfengissýki eftir dauða dóttur sinnar. 

Hún og fleiri hafa tilkynnt hótanirnar og rannsakar lögregla nú loks málið.

Frétt Sky

Faðir Söruh Payne fannst látinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert