Amanda Knox sögð vera trúlofuð

Hin 27 ára Amanda Knox er sögð vera trúlofuð.
Hin 27 ára Amanda Knox er sögð vera trúlofuð. AFP

Hin bandaríska Amanda Knox, sem dæmd var til 28 ára fangelsisvistar á Ítalíu fyrir rúmu ári er nú sögð vera trúlofuð bandarískum tónlistarmanni, Colin Sutherland. Þau eru bæði 27 ára en hann skrifaði henni reglulega þegar hún afplánaði fangelsisdóm á Ítalíu.

Knox er sögð hafa stungið Meredith Kercher til bana eftir heiftarlegt rifrildi þeirra á milli þar sem Kercher hafði sakað Knox um að stela af sér peningum.

Knox og fyrrverandi kærasti hennar, Raffaele Sollecito, hlutu bæði dóm. Málið verður tekið fyrir í Hæstarétti á Ítalíu þar sem þau áfrýjuðu málinu. Þau hafa bæði lýst sig saklaus í málinu. Knox dvelur í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert