„Einn stór pókerleikur“

Fjármálaráðherra Portúgal, Maria Luis Albuquerque, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, og …
Fjármálaráðherra Portúgal, Maria Luis Albuquerque, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, og fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schaeuble. EPA

Wolfgang Schaeuble, fjármálaráðherra Þýskalands, hefur miklar efasemdir um að Grikkjum muni takast að knýja fram endurnýjað samkomulag um skuldir ríkisins og kallar hegðun stjórnvalda í Aþenu „óábyrga“.

Fjármálaráðherrar evruríkjanna munu funda í dag, en Schaeuble sagði í samtali við þýska ríkisútvarpið að hann væri fullur efasemda um að lausn fengist í málið.

Grikkir hafa farið fram á að breytingar verði gerðar á björgunarpakka til handa landinu. Stjórnvöld í Brussel vilja að samkomulag þar að lútandi, sem rennur út í lok mánaðarins, verði framlengt en ráðamenn í Aþenu vilja hins vegar endursemja um ýmsa skilmála.

Schaeuble sagði engu líkara en málið væri „einn stór pókerleikur“ fyrir nýkjörin stjórnvöld í Grikklandi, en ítrekaði aðspurður að honum hugnaðist ekki svokallaður „Grexit“, þ.e. að Grikkir gengju úr evrusamstarfinu.

Hann sagði hins vegar að sú ákvörðun væri í höndum Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands.

Schaeuble fordæmdi þær svívirðingar sem hafa verið látnar dynja á evruríkjunum í Grikklandi og sagðist vorkenna Grikkjum. „Þeir hafa kosið yfir sig ríkisstjórn sem hegðar sér með óábyrgum hætti um þessar mundir,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert