Ýtti kærustunni á undan sér

Raffaele Sollecito mætti til dómshússins í morgun.
Raffaele Sollecito mætti til dómshússins í morgun. AFP

Réttarhald í Hæstarétti Ítalíu, þar sem dómur í máli Amöndu Knox og Raffaele Sollecito verður kveðinn upp í dag, hófst kl. 9 í morgun að íslenskum tíma.

Sollecito ýtti kærustu sinni á undan sér í gegnum þvöguna fyrir framan dómshúsið í Róm í hellirigningu. Knox mun aftur á móti ekki mæta.

Sollecito ræddi við blaðamenn sem höfðu fjölmennt fyrir utan dómshúsið. Þau Knox hafa ávallt haldið fram sakleysi sínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert