Sleppa 350 barnungum hermönnum

Mótmæli í Bangui.
Mótmæli í Bangui. AFP

Vopnaðir hópar í Mið-Afríkulýðveldinu hafa sleppt úr haldi 350 barnungum hermönnum, í samræmi við sáttamála við UNICEF. Fulltrúi samtakanna í Bangui, Mohamed Malick Fall, segir um að ræða stórt skref í átt til friðar, eftir tveggja ára átök.

Þúsundir barna eru talin á valdi vopnaðra hópa í landinu. Börnin sem sleppt var í dag hafa þegar gengist undir læknisskoðun og munu einnig fá sálrænan stuðning. Þá verður þess freistað að hafa uppi á fjölskyldum þeirra.

„Hvert þeirra þarfnast víðtæks stuðnings og verndunar, til að þau geti endurbyggt líf sitt og  haldið áfram barnæsku sinni,“ sagði Fall.

Fyrrnefndur sáttmáli var undirritaður við sáttarviðræður í Bangui í vikunni.

UNICEF áætlar að á milli 6.000-10.000 börn séu enn í haldi vopnaðra hópa, en þau eru m.a. notuð í hernaði og sem kynlífsþrælar. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að Mið-Afríkulýðveldið „gleymist“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert