Weidmann: Evran mun ekki falla

Jens Weidmann, aðalbankastjóri Bundesbank.
Jens Weidmann, aðalbankastjóri Bundesbank. AFP

Evran mun ekki falla ef Grikkir ákveða að yfirgefa evrusvæðið. Þetta segir Jens Weidmann, aðalbankastjóri Bundesbank, þýska seðlabankans.

Í samtali við franska blaðið Les Echos í dag sagði Weidmann að áframhaldandi tilvist evrunnar væri ekki háð því hver þróunin yrði í Grikklandi. Hann viðurkenndi þó að það gæti haft ýmis smitáhrif í för með sér ef Grikkir gæfu evruna upp á bátinn.

Weidmann nefndi einnig að myntsamstarfið gæti, og myndi, taka breytingum ef einstök ríki risu ekki undir ábyrgð sinni.

Seðlabanki Grikklands varaði í gær því að ríkið gæti verið á „sársaukafullri leið“ til greiðslufalls. Í kjölfarið gæti ríkið sagt skilið við evruna og jafnvel Evrópusambandið.

Stjórnvöld í Grikklandi hafa ekki enn náð samkomulagi við lánardrottna sína, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Evrópska seðlabankann og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Viðræðurnar eru komnar í hnút.

Michel Sapin, fjármálaráðherra Frakklands, sagði í gær að ef Grikkir færu úr Evrópusambandinu við núverandi aðstæður, eins og Seðlabanki Grikklands hafði gefið í skyn að gæti gerst, þá yrðu afleiðingarnar skelfilegar, ekki einungis fyrir þá heldur alla Evrópu.

Hann sagði að nú væri það komið undir grískum stjórnvöldum að leggja fram raunhæft tilboð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert