Gæti stutt úrsögn úr ESB

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. AFP

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði á flokksþingi breska Íhaldsflokksins sem hófst í gær að hann gæti ekki ábyrgst að honum tækist að semja um breytta skilmála aðildar landsins að Evrópusambandinu með ásættanlegum hætti.

Cameron hefur heitið þjóðaratkvæði um veru Bretlands í ESB fyrir lok árs 2017. Áður en til þess kemur hyggst hann ná samningum um að endurheimta ákveðnar valdheimildir frá sambandinu. Breskir kjósendur standi þar með frammi fyrir því vali að vera áfram í ESB á breyttum forsendum eða segja alfarið skilið við sambandið.

Ljóst er að breski Íhaldsflokkurinn er klofinn í málinu og er fjöldi þingmanna flokksins opinberlega hlynntur því að segja skilið við ESB. Cameron sagði ennfremur að ef honum tækist ekki að ná viðunandi samningum við sambandið útilokaði hann ekki að hann myndi beita sér fyrir því að Bretar segðu skilið við það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert