Söng hátt og illa með í 20 mínútur

The Bodyguard sló í gegn 1992.
The Bodyguard sló í gegn 1992. Af Wikipedia

Konu sem söng „hátt og illa“ með lögum í söngleiknum The Bodyguard var vísað úr leikhúsi í Notthingham í Bretlandi um helgina. Samkvæmt frétt The Telegraph varð konan árásargjörn þegar aðrir leikhúsgestir báðu hana um að hætta söngnum. Var henni í kjölfarið fylgt út.

Leiksýningin hélt þó áfram og létu leikararnir útgáfu konunnar af ýmsum frægustu lögum Whitney Houston eins og I Will Always Love You ekki trufla sig. Konan söng stanslaust í tuttugu mínútur.

Að sögn annarra leikhúsgesta hótaði konan þeim sem kvörtuðu yfir söngnum. Andrúmslofið var „frekar eins og á fótboltaleik en í leikhúsi,“ sagði Sacha Gainard í samtali við The Telegraph en hann var á sýningunni ásamt foreldrum sínum. „Við vorum nokkrum röðum fyrir framan konuna og það var verið að skamma hana fyrir að syngja með hátt og illa. Hún blótaði og var mjög árásargjörn gagnvart þeim sem voru að reyna að þagga niður í henni.“

Að sögn Gainard var konan fjarlægð eftir tuttugu mínútna söng. „Hún eyðilagði fyrri helminginn fyrir okkur á þessum sömu svölum, þetta eru ekki andrúmsloftið sem maður býst við í leikhúsi.“

Sýningin á The Bodyguard, sem er byggð á samnefndri kvikmynd frá árinu 1992 er nú á ferðalagi um Bretland. Alexandra Burke, sigurvegari X Factor, fer með hlutverk Rachel Marron sem Whitney Houston gerði ódauðlega á sínum tíma.

Í sýningunni má heyra fræg lög eftir Houston eins og Saving All My Love, I Wanna Dance With Somebody og I Will Always Love You.

Hér fyrir neðan má sjá lokaatriði The Bodyguard.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert