Birta myndskeið af fyrirsátinni

AFP

Bandaríska alríkislögreglan hefur birt myndskeið sem sýnir lögreglumann í Oregon skjóta einn vopnuðu mótmælendanna til bana.

Maðurinn var í hópi vopnaðra manna sem her­námu Mal­heur nátt­úru­vernd­ar­svæðið í Or­egon fyrr í mánuðinum. Umsátrið stóð yfir í þrjár vikur en fyrr í vikunni handtók lögreglan hluta af hópunum. Einn þeirra var skotinn til bana þegar til skotbardaga kom á milli lögreglu og mótmælenda.

Myndskeiðið var birt eftir að leiðtogi uppreisnarmannanna, Ammon Bundy, ítrekaði ákall sitt til fjögurra félaga sinna sem enn halda til á náttúruverndarsvæðinu um að yfirgefa svæðið friðsamlega svo hægt verði að komast hjá frekari blóðsúthellingum. Ellefu, þar á meðal Bundy, hafa verið handteknir í vikunni.

Á þriðjudag var Robert "LaVoy" Finicum, sem var talsmaður hópsins, skotinn til bana skammt frá bænum Burns í skotbardaga milli lögreglu og uppreisnarmannanna.

Á myndskeiðinu sést Finicum teygja sig eftir skammbyssu og er þá skotinn af lögreglumanninum en deilt hefur verið um hvor skaut fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert