Innkalla bæði Snickers og Mars

Snickers súkkulaðistöng. Mynd úr safni.
Snickers súkkulaðistöng. Mynd úr safni.

Sælgætisframleiðandinn Mars tilkynnti í dag gríðarmikla innköllun á súkkulaðistöngunum Mars og Snickers auk Milky Way Mini súkkulaðistykkja.

Innköllunina má rekja til þess að plastbiti fannst í einu súkkulaðistykki, að því er segir í tilkynningu. Gildir hún aðeins fyrir markaði Þýskalands og Hollands og þær vörur sem merktar eru bestar fyrir dagsetningar frá 19. júní 2016 til 8. janúar 2017.

Súkkulaðistykkin voru öll framleidd í verksmiðju í bænum Veghel í Suður-Hollandi, samkvæmt hollensku fréttastofunni ANP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert