Rob Ford látinn

Rob Ford.
Rob Ford. AFP

Rob Ford, fyrrverandi borgarstjóri í Toronto, er látinn, 46 ára að aldri. Ford var mjög umdeildur í stjórnartíð sinni en naut mikilla vinsælda meðal íbúa í borginni. Hann var kjörinn borgarstjóri árið 2010 í þessari stærstu borg Kanada. 

Ford greindist með krabbamein í maga árið 2014. Hann glímdi auk þess við áfengisfíkn og játaði að hafa notað fíkniefni. Hann komst einmitt í heimsfréttirnar árið 2013 er hann varð uppvís að því að hafa reykt krakk sem hann viðurkenni svo fúslega. Myndskeiði af athæfinu var m.a. dreift á netinu. Hann var þá hvattur til að fara í meðferð en harðneitaði í fyrstu. Síðar var honum settur stólinn fyrir dyrnar og fór þá í meðferð við áfengisfíkn sinni. Aðeins skömmu síðar var hann greindur með krabbamein í maga. 

Svipmynd af Rob Ford: Litskrúðugur lífsnautnaseggur

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert