Viðhalda Lenín fyrir margar milljónir

Grafhýsi Leníns á Rauða torginu.
Grafhýsi Leníns á Rauða torginu. AFP

Rússnesk stjórnvöld ætla að eyða allt að 13 milljónum rúblum (jafnvirði 24 milljóna íslenskra króna) á þessu ári í að varðveita lík kommúnistaleiðtogans Vladimir Lenín.

Er tilgangurinn að halda líkinu í sem „raunverulegasta ástandi“ en líkið hefur verið til sýnis í grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu frá árinu 1924.

Eftir fall Sovétríkjanna hafa margir kallað eftir því að Lenín verði einfaldlega grafinn frekar en haldið í glerkistunni á Rauða torginu. Í netkönnun sem 8.000 Rússar tóku þátt í voru 62% þeirrar skoðunar að það ætti að jarða Lenín en stjórnvöld hafa ítrekað neitað hugmyndum þess efnis.

Fregnir af kostnaðinum sem felst í því að halda líki Leníns við hefur ekki farið vel í notendur samfélagsmiðla á Rússlandi. Sumir gagnrýna það harðlega að öllum þessum peningum sé eytt í það að „sýna múmíu“ á meðan aðrir benda á að Lenín sjálfur hefði verið á móti þessu.

BBC segir frá. 

Lenín í glerkistunni
Lenín í glerkistunni Af Wikipedia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert