Hafði betur gegn foreldrum Madeleine

Gerry og Kate McCann. Dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum tíu …
Gerry og Kate McCann. Dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum tíu árum. AFP

Portúgalski fyrrverandi lögreglustjórinn Goncalo Amaral hefur farið með sigur af hólmi í máli foreldra Madeleine McCann gegn honum. Þau fóru í mál gegn honum vegna aðdróttana um hvarf dóttur þeirra í bók sem hann gaf út.

Kate og Gerry McCann höfðu haft betur en Amaral áfrýjaði málinu og hafði betur.

Bók lögreglustjórans heitir Sannleikurinn um lygina (e. The Truth of the Lie) og kom út árið 2008. McCann hjónin sökuðu lögreglustjórann um að reyna að koma á sig sök og koma í veg fyrir framgang réttvísinnar. Í bókinni gefur lögreglustjórinn meðal annars í skyn að hjónin hafi falið lík Madeleine. Hún hafi látist af slysförum en hjónin reynt að láta líta út fyrir að henni hafi verið rænt.

Hjónin kröfðust hárra skaðabóta vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert