Blaut tuska í andlit þolenda

Loftmynd af Stanford-háskólasvæðinu.
Loftmynd af Stanford-háskólasvæðinu. Wikipedia/Jrissman

Hátt í 600 þúsund manns hafa skrifað undir í undirskriftarsöfnun á netinu þar sem þess er krafist að dómari í kynferðisbrotamáli gegn fyrrverandi nema við Stanford-háskóla segi af sér. Dómarinn dæmdi Brock Turner, sem var einn efnilegasti sundkappi skólans, í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa beitt rænulausa konu kynferðisofbeldi á skólalóðinni, en mörgum þykir dómurinn ekki hæfa brotinu.

Frétt mbl.is: Árásarmaðurinn gerður að píslarvotti

Dómurinn hefur vakið mikla reiði víða um heim, en há­marks­refs­ing fyr­ir glæp­inn er 14 ára fang­els­is­dóm­ur en mun Turner lík­lega aðeins verja þrem­ur mánuðum bak við lás og slá. Turner var fundinn sekur um þrjá ákæruliði, en hann hætti ekki að brjóta gegn konunni fyrr en tveir hjólreiðarmenn sem áttu leið hjá stóðu hann að verki.

Það voru sænsku stúdentarnir Carl-Fredrik Arndt og Peter Jonsson sem komu auga á Turner á bak við ruslagám þar sem hann lá ofan á hreyfingarlausri konunni. Þegar þeir nálguðust Turner stakk hann af, en Jonsson elti hann uppi og hélt honum föstum þar til lögreglan kom og handtók hann. Arndt beið hjá konunni á meðan, en mennirnir tveir voru lykilvitni í málinu.

Þingmaður segir dóminn fáránlegan

Aaron Per­sky, dóm­ar­inn í mál­inu, sagðist hafa litið til þess að Turner hefði fengið góð meðmæli og væri ekki á saka­skrá. Sagði hann að fang­elsis­vist myndi hafa „veru­leg áhrif á hann“.

Fjölmargir hafa opinberlega gagnrýnt niðurstöðu dómarans, þar á meðal Barbara Boxer, öldungadeildarþingmaður bandaríska þingsins. „Sex mánuðir fyrir það að ráðast á konu með ógeðfelldum hætti, sérstaklega eftir að hún var nógu hugrökk til að stíga fram, er fáránlegt,“ sagði hún í yfirlýsingu.

Brock Turner.
Brock Turner.

Dóminum hefur einnig verið lýst sem blautri tusku í andlit brotaþola kynferðisofbeldis. „Dómarinn fattaði ekki að sú staðreynd að Brock Turner sé hvítur afreksíþróttamaður í virtum háskóla á ekki að gera það að verkum að dómurinn sé mildaður,“ skrifaði Maria Ruiz, sem hóf undirskriftarsöfnunina. „Honum mistókst að senda þau skilaboð að kynferðisofbeldi er lögbrot, óháð þjóðfélagsstöðu, kynþætti, kynferði eða öðrum þáttum.

Þá hafa ummæli föður Turners einnig vakið hörð viðbrögð, en hann sagði að son­ur sinn ætti ekki að þurfa að sitja í fang­elsi vegna „20 mín­útna gjörn­ings“. Hann ætti frekar að fá að fræða ungt fólk um það hvernig áfengisdrykkja getur eyðilagt mannslíf.

„Nú er ég allar konur“

Hið 23 ára fórn­ar­lamb Turner, sem hefur ekki komið fram undir nafni opinberlega, tjáði sig í rétt­ar­saln­um á fimmtudag og fór með sam­an­tekt, 12 blaðsíðna yf­ir­lýs­ingu sem hún hafði lagt fyr­ir dóm­ar­ann. Sagðist hún betur geta staðið fyrir allar konur ef nafn hennar og andlit yrði ekki gert opinbert. „Ég er að koma fram, einfaldlega sem kona sem vill að hlustað sé á sig,“ sagði hún. „Nú er ég allar konur“.

Í yfirlýsingunni rifjaði hún upp hvernig hún hefði farið í partý 17. janú­ar 2015 og vaknað á sjúkra­húsi dag­inn eft­ir án þess að muna hvað hafði gerst kvöldið áður. Þá talaði hún um rann­sókn­ina sem hún þurfti að gang­ast und­ir til að safna mætti sönn­un­ar­gögn­um og sárs­auka­full­ar yf­ir­heyrsl­ur á meðan málið stóð yfir.

Hún lýsti því m.a. hvernig henni hefði verið ráðlagt að ráða valda­mikla lög­menn og sér­fræðivitni; hvernig henni hefði verið tjáð að árás­armaður­inn myndi gera allt til að sann­færa fólk um að hann hefði bara verið ringlaður þegar hann réðist á hana.

Tvö líf eyðilögð

„Ég var skot­mark mark­vissra spurn­inga sem beind­ust að einka­lífi mínu, ástar­lífi mínu, fjöl­skyldu­lífi mínu; vit­lausra spurn­inga sem miðuðu að því að safna smá­vægi­leg­um upp­lýs­ing­um til að reyna að grafa upp af­sök­un fyr­ir þenn­an mann, sem hafði af­klætt mig til hálfs áður en hann hafði fyr­ir því að spyrja mig að nafni,“ sagði kon­an.

Þá sagði hún að tvö líf hefðu verið eyðilögð. „Skaði þinn var áþreif­an­leg­ur; þú varst svipt­ur titl­um, gráðum, skóla­vist. Skaði minn var inn­vort­is, óséður, ég ber hann með mér. Þú tókst sjálfs­virðingu mína, einka­líf, orku, tíma, ör­yggi, nánd, sjálfs­ör­yggi, rödd, þar til í dag.“

Yf­ir­lýs­ing henn­ar henn­ar hef­ur vakið heims­at­hygli og verið skoðuð oft­ar en 10 millj­ón sinn­um á Buzz­Feed.

Kyn­ferðisof­beldi við há­skóla er svo títt í Banda­ríkj­un­um að nær er að tala um far­ald­ur, en síðustu miss­eri hef­ur átt sér stað ákveðin vit­und­ar­vakn­ing varðandi það hversu árás­ar­menn­irn­ir sleppa oft vel en fórn­ar­lömb­in fara illa út úr því að stíga fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert