Bresk þingkona stungin og skotin

Breska þingkonan Joe Cox
Breska þingkonan Joe Cox Ljósmynd/Af Twitter-síðu Cox

Jo Cox, þingkona breska Verkamannaflokksins, hefur orðið fyrir skot- og stunguárás í Vestur-Jórvíkurskíri. Þá er ónefndur karlmaður særður eftir árásina.

Cox var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Leeds, þar sem hún liggur nú þungt haldin. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu, BBC, er vopnað lið lögreglu fyrir utan sjúkrahúsið. Í yfirlýsingu sem lögreglan í Vestur-Jórvíkurskíri sendi frá sér, segir að 52 ára karlmaður hafi verið handtekinn vegna málsins.

Greint er frá því í breskum miðlum og á samfélagsmiðlum að árásarmaðurinn hafi hrópað „Britain First“ á meðan hann stakk þingkonuna, eftir að hafa skotið hana þremur skotum, en Britain First er breskur stjórnmálaflokkur sem berst gegn innflytjendum og fjölmenningu. 

Uppfært kl. 13:57: 

BBC greinir frá því að þingkonan hafi verið á fundi á bókasafni í Birstall, þegar árásin átti sér stað. Vitni að árásinni segir tvo menn hafa deilt fyrir utan bókasafnið og að Cox hafi skorist í leikinn, með fyrrnefndum afleiðingum.

Hún hefur nú verið flutt á sjúkrahús í Leeds, þar sem hún liggur þungt haldin.

Uppfært kl. 14:15:

Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, hefur tjáð sig um árásina á Twitter-reikningi sínum. Þar segist hann í áfalli vegna fréttanna og að hugur Verkamannaflokksins sé hjá Cox og fjölskyldu hennar.

Uppfært kl. 14:31: Upphaflega var greint frá því að breskir miðlar greindu frá árásinni samkvæmt óstaðfestum heimildum. Talskona þingkonunnar hefur nú staðfest fréttirnar. 

Uppfært kl. 14:53: Lögreglan í Vestur-Jórvíkurskíri segir í yfirlýsingu að 52 ára karlmaður hafi verið handtekinn vegna atviksins. Greint er frá því í breskum miðlum og á samfélagsmiðlum að árásarmaðurinn hafi hrópað „Britain First“ á meðan hann stakk þingkonuna, eftir að hafa skotið hana þremur skotum, en Britain First er breskur stjórnmálaflokkur sem berst gegn innflytjendum og fjölmenningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert