Framlengingin samþykkt með fyrirvara

Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel.
Höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. mbl.is/Hjörtur

Evrópusambandið hefur ákveðið að framlengja refsiaðgerðir sínar gegn Rússlandi vegna innlimunar rússneskra stjórnvalda á Krímsskaga og stuðnings þeirra við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Þetta kemur fram á fréttavefnum Euobserver.com.

Fram kemur í fréttinni að þrjú ríki Evrópusambandsins hafi hins vegar fallist á framlengingu refsiaðgerðanna með fyrirvara um samþykkt þjóðþinga sinna, það er Frakkland, Svíþjóð og Bretland. Þetta þýðir að framlengingin tekur ekki gildi nema þing ríkjanna leggi blessun sína yfir hana.

Haft er eftir ónafngreindum embættismanni að um eðlilega afgreiðslu sé að ræða og að fulltrúar ríkjanna þriggja hefðu ekki samþykkt framlenginguna fyrir sitt leyti ef þeir teldu ekki að þeir hefðu stuðning þjóðþinga sinna að baki sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert