Intersex-fólk og heimur íþróttanna

Caster Semenya fagnar ólympíumeistaratitli sínum í 800 metra hlaupi í …
Caster Semenya fagnar ólympíumeistaratitli sínum í 800 metra hlaupi í Ríó. AFP

Hugtakið intersex er notað um þá einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að ytri eða innri kynfæri eða litningasamstæða samræmast ekki hinum hefðbundnu kynjum. Fólk með slíka kynferðistvíræðni fæðist með einkenni á milli beggja kynja, líffæri þeirra og líkamsbygging eru annaðhvort tvíræð eða bera mismikil karlkyns og kvenkyns einkenni.

Í heimi íþróttanna hefur verið deilt um rétt þessara einstaklinga til þess að keppa í íþróttagreinum sem skipt er í flokka eftir kynjum. Umræðuefnið er án efa afar viðkvæmt en álitamál sem tengjast því rísa gjarnan í kringum stóra íþróttaviðburði líkt og Ólympíuleikana. Því hefur verið haldið fram að karlmenn hafi reynt að keppa í flokki kvenna eða þá að intersex-einstaklingar búi yfir ákveðnum eiginleikum sem veiti þeim ósanngjarnt forskot á aðra keppendur eins og í tilfelli suðurafrísku hlaupakonunnar Caster Semenya. Semenya bar sigur úr býtum í 800 metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó.

Caster Semenya hljóp af miklu öryggi í úrslitahlaupinu.
Caster Semenya hljóp af miklu öryggi í úrslitahlaupinu. AFP

Semenya uppfyllti skilyrði fyrir keppni í kvennaflokki 

Í gegnum tíðina hafa verið gerðar alls kyns prófanir á kynferði keppenda. Í fyrstu voru þetta læknisskoðanir en nú er farið að skoða litninga og hormón keppenda til þess að ákvarða kynferði þeirra. Semenya vann 800 metra hlaup kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Berlín 2009. Skömmu áður hafði Alþjóðafrjálsíþróttasambandið tilkynnt suður-afríska sambandinu að rannsókn væri hafin á því hvort Semenya uppfyllti skilyrði fyrir keppni í kvennaflokki. Framkvæmdar voru mælingar á magni testósteróns í líkama Semenyu til að athuga hvort hún færi yfir leyfilegt hámark sem valið var af handahófi. Alþjóðafrjálsíþrótta­sam­bandið komst að þeirri niður­stöðu að ekk­ert væri því til fyr­ir­stöðu að Semenya keppti í kvenna­flokki. 

Í apríl 2011 tilkynnti sambandið nýjar reglur og fyrirkomulag þar sem testósterónmagn keppenda í kvennaflokki mætti ekki vera hærra en 10 nmol/L. Þeir keppendur sem færu yfir það magn þyrftu að taka hormón til að lækka magn testósteróns í líkamanum fyrir keppni. Þessi regla var í gildi þangað til í júlí 2015. Afnám reglunnar er lykilástæða þess að Semenya hóf keppni á ný.

Caster Semenya.
Caster Semenya. AFP

Gerðardómur afnam regluna um magn testósteróns

Ástæða þess að reglan var afnumin er mál indversku spretthlaupakonunnar Dutee Chand sem vikið var úr keppni á leikum breska samveldisins árið 2014 vegna of mikils magns testósteróns í líkamanum. Chand áfrýjaði þeirri ákvörðun til gerðardóms sem sagði að þau gögn sem sýndu fram á að aukið magn testósteróns bætti frammistöðu kvenkeppenda væru ófullnægjandi. Gerðardómur afnam því regluna um testósterónmagn keppenda og skoraði á Alþjóðafrjálsíþróttasambandið að færa fram betri rök fyrir reglunni. 

Í málatilbúnaði Chand sagði meðal annars að hún ætti ekki að þurfa að kenna á erfðafræðilegu forskoti sínu og að með reglunni sem innleidd var í apríl 2011 væri verið að mismuna konum þar sem magn testósteróns hjá karlmönnum væri ekki skoðað fyrir keppni. Þá sýndu lögmenn Chand fram á að 10 nmol/L af testósteróni væri tala valin af handahófi.

Alþjóðafrjálsíþróttasambandið hefur þangað til í júlí 2017 til þess að koma fram með sönnunargögn um hvers vegna testósterónmagn kvenkeppenda má ekki fara yfir 10 mnol/L. Þangað til geta intersex-keppendur líkt og Semenya og Chand keppt áhyggjulausir án þess að taka hormón til þess að minnka magn testósteróns í líkamanum.

Frétt The Guardian

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert