„Það eru svo margar píkur“

Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov.
Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov. AFP

Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, talaði tæpitungulaust í samtali við fréttamann CNN fyrr í dag, spurður um skoðun á ummælum bandaríska forsetaframbjóðandans Donald Trump, þar sem hann sagði konur leyfa frægum mönnum eins og honum að grípa um kynfæri þeirra.

Frétt mbl.is: „Grípa í píkuna á þeim“

„Enska er ekki móðurmál mitt, ég veit ekki hvort ég muni hljóma siðlega: Það eru svo margar píkur í kringum forsetaframboð ykkar, á báðum hliðum, að ég kýs fremur að tjá mig ekki um þetta.

Fréttakonan Christine Amanpour gat vart annað en skellt upp úr við þessi ummæli Lavrov.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert