Krumlur Trumps eins og kolkrabbi

„Hann var eins og kolkrabbi [...] hendur hans voru alls …
„Hann var eins og kolkrabbi [...] hendur hans voru alls staðar,“ segir Jessica Leeds. AFP

Ásakanir á hendur forsetaframbjóðanda repúblikana, Donald Trump, hrannast upp þessa dagana en í gærkvöldi birti New York Times frásögn tveggja kvenna af þukli hans og kossum. „Hann var eins og kolkrabbi [...] hendur hans voru alls staðar,“ segir Jessica Leeds.

Leeds, sem er 74 ára íbúi á Manhattan, var 38 ára gömul flugfreyja þegar Trump réðst á hana þar sem þau sátu hlið við hlið á fyrsta farrými á leið til New York þegar hann lyfti upp sætisarmi milli þeirra og byrjaði að þukla á henni. 

Stuðningsmaður Donalds Trump.
Stuðningsmaður Donalds Trump. AFP

Fréttakona People-tímaritsins hefur einnig greint frá því hvernig Trump hafi kysst hana án hennar vilja. Sjá hér.

Rachel Crooks var 22 ára gömul á þeim tíma og starfaði í móttöku Trump-byggingarinnar í New York. Hún varð fyrir því að kaupsýslumaðurinn kyssti hana beint á munninn við lyftu í byggingunni. Hún segir að þetta hafi ekki verið óviljandi heldur ofbeldi. Hún hafi farið strax og hringt í systur sína og látið hana vita af athæfi Trumps en ekki kært hann.

En kosningaskrifstofa Trumps gefur lítið fyrir frásagnir kvennanna og segir frétt NYT ærumeiðandi.

Framboðið hefur sent opið bréf til NYT þar sem blaðinu er hótað lögsókn nema blaðið dragi umfjöllun sína til baka. NYT stendur hins vegar við umfjöllunina.

AFP

Hvorug kvennanna kærði Trump á sínum tíma en þær greindu báðar vinum og fjölskyldu frá athæfi Trumps. 

Í gærkvöldi var birt myndskeið úr jólaþætti Entertainment Tonight árið 1992 þar sem Trump horfir á hóp ungra stúlkna og segir að hann eigi eftir að fara út með einni þeirra eftir tíu ár. Trump var 46 ára á þessum tíma. Í myndskeiðinu sést Trump spyrja eina af stelpunum hvort hún ætli upp í rúllustiganum. Hún svarar honum játandi og þá horfir Trump í myndavélina og segir: „Ég ætla að fara með henni á stefnumót eftir tíu ár. Trúið því.“

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Trump opinberar áhuga sinn á því að vera með miklu yngri konum. Árið 2006 lét hann svipuð ummæli falla um eigin dóttur, Ivanka Trump. „Ég hef sagt það að ef Ivanka væri ekki dóttir mín þá myndi ég jafnvel vera með henni.“

CBS News

Guardian

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert