Önnur sjálfsvígstilraun Manning

Chelsea Manning.
Chelsea Manning. Ljósmynd/Wikipedia

Chelsea Manning reyndi að fremja sjálfsvíg í síðasta mánuði á meðan hún var í einangrun eftir að hafa gert sjálfsvígstilraun í júlí síðastliðnum.

Manning, sem er fyrrverandi starfsmaður Bandaríkjahers, var dæmd í 35 ára fangelsi fyrir að leka leyniskjölum til vefsíðunnar WikiLeaks.

Mynd sem var tekin í ágúst 2013 af Chelsea Manning …
Mynd sem var tekin í ágúst 2013 af Chelsea Manning á leið fyrir herrétt í Bandaríkjunum. AFP

Samkvæmt yfirlýsingu sem hún las upp um miðjan október fyrir stuðningsmenn sína reyndi hún að fremja sjálfsvíg 4. október.

Lögmenn hennar staðfestu atvikið á Twitter.

Manning lauk fimm daga hungurverkfall í september eftir að herinn samþykkti að hún fengi að gangast undir kynleiðréttingaraðgerð.

Frétt mbl.is: Chelsea Manning hætt í hungurverkfalli

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert