Telja zika ekki lengur alþjóðlegt neyðarástand

Zikan-veiran smitast aðallega með moskítóbiti en getur einnig gengið á …
Zikan-veiran smitast aðallega með moskítóbiti en getur einnig gengið á milli manna með kynmökum. AFP

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) segir að hún líti ekki lengur á zika-veirufaraldurinn sem alþjóðlegt neyðarástand en það hefur staðið yfir í níu mánuði. Með því er stofnunin sögð viðurkenna að veiran sé komin til að vera. Veiran hefur verið tengd við fæðingargalla í börnum í tæplega þrjátíu löndum.

Alls hafa 2.100 tilfelli greinst í Brasilíu en sjúkdómurinn smitast aðallega með moskítóbiti. Fáir látast af völdum veirunnar og aðeins einn af hverjum fimm er talinn sýna einkenni hennar, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

WHO ætlar nú að einbeita sér að lengri tíma áætlun gegn zika en veiran hefur breiðst út um Rómönsku Ameríku, Karíbahafið og víðar.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert