Fundu leifar af sprengiefni

AFP

Leifar af sprengiefni fundust á farþegum EgyptAir þotunnar sem hrapaði á leið frá París til Kairó 19. maí síðastliðinn. Allir 66 farþegar vélarinnar létu lífið.

Egypsk flugmálayfirvöld sendu frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að formleg glæparannsókn á hrapi Air­bus 320 þotunnar hefjist þegar í stað.

Hingað til hefur ekki komið í ljós hvað olli því að þotan hrapaði.

Engin neyðarskilaboð bárust frá þotunni en upptökur úr flugstjórnarklefanum sýna fram á að flugstjórarnir hafi barist við að slökkva eld.

Sjálf­virkt viðvör­un­ar­kerfi gaf til kynna að reyk­ur hafi verið í nefi þot­unn­ar og að eitt­hvað hafi verið að stjórn­un­ar­kerfi henn­ar.

Skila­boðin úr kerf­inu gáfu til kynna að reyk­ur hafi verið í fram­hluta vél­ar­inn­ar, sér­stak­lega í sal­erni og vél­ar­rými fyr­ir neðan flug­stjórn­ar­klef­ann. Reyk­skynj­ar­ar þar hafi farið í gang aðeins nokkr­um mín­út­um áður en þotan hvarf af rat­sjá.

Þrátt fyrir að óttast hefði verið að um hryðjuverk hefði verið að ræða hafa engir hryðjuverkahópar líst yfir ábyrgð á verknaðinum.

Frétt BBC um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert