Assange ætlar að standa við loforðið

Julian Assange, stofnandi Wikileaks.
Julian Assange, stofnandi Wikileaks. AFP

Julian Assange, stofnandi uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, mun standa við orð sín og fallast á framsal til Bandaríkjanna eftir að Barack Obama Bandaríkjaforseti stytti dóm Chelsea Manning. Samkvæmt ákvörðun Obama mun Manning sitja í fangelsi til 17. maí, en þá hefur hún lokið tæplega sjö ára fangelsi af 35 ára dómi sem hún fékk fyrir uppljóstranir sínar um málefni Bandaríkjanna í Afganistan og Írak.

Fyrir viku var greint frá því að Manning væri á stuttlista Obama yfir einstaklinga sem var til skoðunar að náða og sagði Assange við það tækifæri að hann myndi fallast á framsal til Bandaríkjanna þrátt fyrir að að hann teldi sig ekki fá sanngjörn réttarhöld í Bandaríkjunum.



Í nótt, eftir að tilkynnt var um að Obama hefði mildað dóm yfir Manning og að hún yrði laus í maí, sendu Wikileaks samtökin tíst frá sér á Twitter þar sem ákvörðun Obama var lýst sem sigri. Þá var tekið fram að lögmaður Assange segði um framsalsmálið að Assange myndi standa við allt sem hann hefði lofað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert