Mótmæli gegn innsetningu Trumps í Washington

Hópur fólks mótmælir innsetningu Donald Trumps í embætti forseta í …
Hópur fólks mótmælir innsetningu Donald Trumps í embætti forseta í miðbæ Washington í dag. AFP

Lögregla beitti táragasi til að dreifa hópi mótmælenda sem brutu rúður og hentu grjóti í Washington nú í dag, til að mótmæla innsetningu Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta, að því er BBC greinir frá á Twitter-síðu sinni.

Athöfnin hefst eft­ir tæp­lega eina klukku­stund. Það er klukk­an 11.00 að staðar­tíma í Washingt­on, höfuðborg lands­ins.

Flestir mótmælenda voru friðsamir og létu sér nægja að láta orðin tala, en mikill lögregluvarsla er í miðbænum. Á sama tíma söfnuðust stuðningsmenn Trumps og ráðamenn fyrir í næsta nágrenni við National Mall til að fylgjast með innsetningarathöfninni.

Þrátt fyr­ir úr­komu í höfuðborg­inni hef­ur mik­ill fjöldi stuðnings­manna Trumps lagt leið sína í miðborg­ina en bú­ist er við að um 800 þúsund manns muni koma þar sam­an.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert