Sérsveitarmenn réðust á liðsmenn al-Qaeda

Vopnuð átök hafa staðið yfir í Jemen um nokkurt skeið. …
Vopnuð átök hafa staðið yfir í Jemen um nokkurt skeið. Aðgerðir Bandaríkjahers beindust gegn liðsmönnum al-Qaeda. AFP

Bandarískir sérsveitarmenn eru sagðir hafa fellt yfir 40 liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í Jemen. Nokkrar Apache-herþyrlur tóku þátt í aðgerðunum sem áttu sér stað í héraðinu al-Baida sem er í miðhluta landsins. 

Greint er frá þessu á vef breska ríkisútvarpsins (BBC) og er þetta haft eftir yfirvöldum í Jemen og ættbálkum í landinu. 

Þrír foringjar al-Qaeda eru sagðir á meðal þeirra sem féllu í atökum í þorpinu í Yakla-hverfinu, en bardaginn er sagður hafa staðið yfir í 45 mínútur. 

BBC segir að talsmenn bandaríska hersins hafi ekki tjáð sig um málið. Hingað til hefur Bandaríkjaher notað dróna til að gera loftárásir á liðsmenn samtakanna í Jemen. 

BBC hefur eftir heimildum að 41 vígamaður og 16 óbreyttir borgarar hafi fallið í átökunum. Embættismaður í héraðinu segir að þyrlurnar hafi gert árás á sjúkrahús, skóla og mosku. 

Abdul Raouf al-Dhabab, einn af leiðtogum al-Qaeda í landinu, er sagður á meðal þeirra sem féllu í hernaðaraðgerðinni sem var gerð að næturlagi. Herinn notaði jafnframt dróna í aðgerðinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert