Rænt og nauðgað á Indlandi

AFP

Þýsk ferðakona hefur sakað tvo menn um að hafa rænt sér og nauðgað í Tamil Nadu-ríki á Indlandi og hefur læknisrannsókn staðfest frásögn konunnar af kynferðislegu ofbeldi. Aðeins nokkrar vikur eru síðan írskri konu var nauðgað og hún myrt í Goa á Indlandi.

Þýska konan dvaldi á hóteli á einkaströnd, skammt frá ferðamannabænum Mamallapuram. Hún segir að tveir menn hafi ráðist á hana og farið með hana á afvikinn stað þar skammt frá og nauðgað henni.

Að sögn lögreglu er mannanna nú leitað og hafa þegar nokkrir verið yfirheyrðir vegna málsins en þýska sendiráðið hefur verið upplýst um árásina.

Tæpar þrjár vikur eru síðan 28 ára gamalli írskri konu var nauðgað og hún síðan myrt í Goa. Lík Danielle McLaughlin fannst skammt frá ströndinni 16. mars. Miklir og margvíslegir áverkar voru á líkinu en lögregla hefur handtekið mann úr nágrenninu og ákært hann fyrir nauðgun og morð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert