Gerðu sprengju óvirka

Lörgreglan gætir lestastöðvar eftir hryðjuverkaárásina.
Lörgreglan gætir lestastöðvar eftir hryðjuverkaárásina. AFP

Rannsóknarlögreglan í Rússlandi fann sprengju við húsleit og handtók þrjá menn í tengslum við hryðjuverkaárásarinnar í St. Pétursborg fyrir nokkrum dögum þegar 14 létust. Sprengjan var gerð óvirk og lögreglan lagði hald á önnur tæki og tól til sem notuð voru við sprengjugerð.   

Samkvæmt vitnum voru þrír menn leiddir út í handjárnum af lögreglu, segir í frétt BBC um málið. 

Maðurinn sem er sagður hafa staðið á bak við sjálfsmorðsárásina var Ak­bar­jon Djali­lov. 

Í gær tilkynnti lögreglan að rúss­neska rann­sókn­ar­lög­regl­an að hún hafi hand­tekið sex „hryðju­verka­menn“ sem voru að reyna að fá fólk til að ganga til liðs við Ríki íslams í St. Pét­urs­borg. Menn­irn­ir eru all­ir frá  Mið-Asíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert