Spicer biðst afsökunar á ummælunum

Sean Spicer, upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, hefur beðist afsökunar á óvarfærnum ummælum sem hann lét falla á blaðamannafundi fyrr í dag, þar sem hann sagði Adolf Hitler, fyrrverandi leiðtoga Þýskalands á tímum nasista, ekki hafa beitt efnavopnum gegn borgurum landsins.

„Í hreinskilni, þá notaði ég óviðeigandi og tillitslaus orð um helförina og það er enginn samanburður,“ sagði Spicer í samtali við fréttastofu CNN. „Ég biðst afsökunar á því. Það voru mistök.“

Fyrr í kvöld greindi mbl.is frá því að Spicer hefði vafist tunga um tönn á blaðamanna­fundinum þegar hann virt­ist, að minnsta kosti um sinn, gleyma því að hel­för­in hefði átt sér stað.

Spicer var að tala um efna­vopna­árás­ina sem gerð var í Sýr­landi í síðustu viku, sem Banda­ríkja­stjórn sak­ar sýr­lensku rík­is­stjórn­ina um að hafa skipu­lagt, þegar hann sagði: „Þú hafðir ein­hvern jafn fyr­ir­lit­leg­an og Hitler, sem lagðist ekki einu sinni svo lágt að nota efna­vopn.“

Um­mæl­in féllu á fyrsta degi páska­hátíðar gyðinga og vöktu væg­ast sagt undr­un í saln­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert