Pútín óskaði Erdogan til hamingju

Vladimir Pútín Rússlandsforseti.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti. AFP

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, hefur óskað Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, til hamingju með að hafa borið sigur úr býtum í þjóðaratkvæðagreiðslu um aukin völd hans.

Pútín óskaði Erdogan til hamingju með „vel heppnaða framkvæmd“ þjóðaratkvæðagreiðslunnar, samkvæmt yfirlýsingu frá rússneskum stjórnvöldum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti óskaði Erdogan í gær til hamingju með sigurinn.

Undirbúningi og framkvæmd kosninganna hefur víða verið mótmælt. Andstæðingar Erdogans hyggjast kæra niðurstöðuna og hafa þeir krafist endurtalningar.

Erdogan, forseti Tyrklands.
Erdogan, forseti Tyrklands. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert