Lögreglumenn í San Diego í Bandaríkjunum skutu fimmtán ára pilt til bana. Pilturinn hafði miðað loftbyssu á lögreglumennina. Að þeirra sögn skipuðu þeir honum að leggja byssuna frá sér. Hann gerði það ekki heldur kom enn nær þeim.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt laugardags. Lögreglan fékk tilkynningu í gegnum neyðarnúmerið 911 og var beðin að athuga með mann sem stæði við Torrey Pines-menntaskólann í borginni. Sá sem hringdi minntist ekki á að pilturinn væri með byssu.
Lögreglumenn sáu piltinn er þeir mættu á staðinn. Er þeir fóru út úr lögreglubílum sínum tók ástandið að magnast, eins og lögreglan lýsir því.
PRESS RELEASE: Regarding the Officer Involved Shooting from last night. pic.twitter.com/3HpwwdJ97W
— San Diego Police (@SanDiegoPD) May 6, 2017
Þeir segja að pilturinn hafi dregið upp byssu sem hann bar í buxnastrengnum. Hann hafi beint henni að lögreglumönnunum. „Þar sem þeir óttuðust um öryggi sitt skutu báðir lögreglumennirnir úr byssum sínum og hæfðu hann mörgum sinnum,“ segir í yfirlýsingu sem lögreglan hefur sent frá sér vegna atviksins.
Lögreglumennirnir kölluðu strax eftir aðstoð sjúkrabíls og hófu lífgunartilraunir á staðnum.
Pilturinn var fluttur á sjúkrahús, þar sem hann lést af sárum sínum.
Í frétt Washingon Post um málið segir að lögreglan hafi nú komist að því að pilturinn hafi sjálfur hringt í lögregluna og boðað hana á staðinn.