Skar undan meintum nauðgara sínum

AFP

Indversk kona skar getnaðarliminn af karlmanni sem reyndi að nauðga henni á heimili hennar í suðurhluta Indlands. Konan, 23 ára laganemi, var á heimili sínu í borginni Thiruvananthapuram á föstudagskvöldið þegar hún varð að eigin sögn fyrir árás 54 ára gamals karlmanns samkvæmt frétt breska dagblaðsins Daily Telegraph.

Haft er eftir lögreglustjóranum G. Sparjan Kumar að konan hafi notað hníf til að verja sig og skorið af honum getnaðarliminn. Maðurinn, Hari Swami, var fluttur á sjúkrahús. Ástand hans er alvarlegt en stöðugt samkvæmt fréttinni. Konan segir manninn hafa beitt hana ofbeldi árum saman og hefur hann nú verið kærður fyrir kynferðisofbeldi.

Konan sagði lögreglunni að foreldrar hennar trúðu Swami í blindni en hann mun hafa verið tíður gestur á heimili konunnar og foreldra hennar. Sagðist hann vera trúarlegur fræðimaður og fengu foreldrar konunnar hann reglulega til þess að framkvæma ýmsar trúarathafnir. Konan er nú undir verndarvæng lögreglunnar og hefur hefur fengið áfallahjálp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert