Ósmekkleg ummæli á minningarathöfn Auschwitz

Beata Szydlo, forsætisráðherra Póllands.
Beata Szydlo, forsætisráðherra Póllands. AFP

Beata Szydlo, forsætisráðherra Póllands, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir ummæli sín sem hún lét falla á minningarathöfn um Auschwitz útrýmingarbúðir nasista. 77 ár eru liðin frá því fyrstu fangar voru fluttir yfir til Póllands og þeir hnepptir í ánauð í seinni heimsstyrjöld. 

„Á þeim ófriðartímum sem við lifum getum við lært af Auschwitz að við þurfum að gera allt til að standa vörð um sjálfstæði okkar og líf borgaranna,“ sagði Szydlo. Þessi ummæli lét hún falla einum degi eftir að refsiaðgerðir Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Póllandi fyr­ir að taka við færri flótta­mönn­um. 

Auk Póllands beinast refsiaðgerðir Evrópusambandsins einnig gegn Tékkland og Ungverjalandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert