Lögreglan í Malí skaut fjóra vopnaða vígamenn og hneppti fimm í varðhald eftir árás þeirra á vinsælan ferðamannastað nálægt Bamako, höfuðborg Afríkuríkisins, í gærdag. Í árásinni létust tveir borgarar og lögreglan náði að leysa 36 úr gíslingu. Flestir gíslanna voru franskir og malískir borgarar.
Árásarmennirnir eru sagðir hafa hrópað „Allahu Akbar“, eða „Guð er mestur“ áður en þeir létu til skarar skríða. Skotmarkið var ferðamannastaðurinn Kangaba Le Campement, sem er skammt frá Bamako. Staðurinn er vinsæll meðal vestrænna ferðamanna. Enginn öfgahópur hefur lýst árásinni á hendur sér.
Íbúi í nágrenni svæðisins gerði lögreglunni viðvart er hann heyrði byssuskot og reyk stíga upp til himins. Eldur logaði í að minnsta kosti einni byggingu.
Annar íbúi sagðist hafa séð vopnaðan mann á mótorhjóli keyra að svæðinu og hefja skotárás. Skömmu síðar hafi komið tveir til þrír menn til viðbótar á bifreið. Þetta kom fram í viðtali við sjónarvottinn á sjónvarpsstöðinni ORTM.
Salif Traore, ráðherra öryggismála í landinu, segir að vopnaðir íslamistar beri ábyrgð á ódæðinu. Öryggissveitarmennirnir nutu stuðnings friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna og franskra sérsveitarmanna í landinu í aðgerðunum.
Árásir íslamista á her og stjórnvöld landsins hafa verið tíðar í norðurhluta og á miðju landinu um árabil en árásir þeirra á almenna borgara í og við höfuðborgina eru mun fátíðari. Svipuð árás átti sér stað fyrir tveimur árum, en þá réðust vopnaðir menn á glæsihótel í Bamako þar sem 20 manns létust. Eftir það hafa yfirvöld hækkað viðbúnaðarstig í landinu.