Færri svelta en fleiri hungraðir

Suður-Súdanar hafa í þúsundavís flúið til nágrannalandsins Súdan síðustu mánuði.
Suður-Súdanar hafa í þúsundavís flúið til nágrannalandsins Súdan síðustu mánuði. AFP

Sameinuðu þjóðirnar segja að hungursneyð ríki ekki lengur í Suður-Súdan þar sem tekist hefur að koma meiri neyðaraðstoð til íbúanna. Engu að síður býr um 1,7 milljón manna í landinu við mikinn matarskort og hungur. 

Hungursneyð var lýst yfir í landinu í febrúar og var það í fyrsta skipti frá árinu 2011 sem slíkt neyðarástand hafði skapast í heiminum. 

Borgarastríð geisar í Suður-Súdan. Það hefur tafið alla neyðaraðstoð til íbúanna. Einnig ríkir óðaverðbólga og hafa nauðþurftir rokið upp í verði og eru á fárra færi.

Tugþúsundir hafa týnt lífi í átökunum síðustu þrjú ár og milljónir hafa lagt á flótta. 

Þó að ástandið sé ekki lengur skilgreint sem hungursneyð segja Sameinuðu þjóðirnar að sá fjöldi sem er í hættu á að svelta hafi aukist úr 5,5 milljónum í sex á einum mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert