Fundu 27 linsur í auga

Konan hafði ekki hugmynd um að 27 augnlinsur væru fastar …
Konan hafði ekki hugmynd um að 27 augnlinsur væru fastar inn í auganu.

Breskir augnlæknar fundu 27 linsur inn í auga  á 67 ára gamalli konu í skurðaðgerð. Konan hafði ekki hugmynd um að linsurnar væru þar og hélt að verkurinn í auganu stafaði af augnþurrk og aldri sínum. Konan hafði notað daglinsur að staðaldri í 35 ár. Á þeim tíma minntist hún ekki að linsurnar hefðu farið á flakk inn í auganu. Ekki er vitað hversu lengi linsurnar höfðu verið í auga konunnar. Þetta kemur fram á vef Sambands augnlækna í Bretlandi.

Konan fór í tvær aðgerðir í þeirri fyrstu fundust 17 linsur allar fastar saman og í þeirri seinni fundust 10 til viðbótar. Læknateymið sem gerði skurðaðgerðina býr að 20 ára reynslu ýmsum augnaðgerðum hafði aldrei séð sambærilegt tilvik áður. Upphaflega lagðist konan undir hnífinn vegna annarra óþæginda. 

„Það kom okkur virkilega á óvart að sjúklingurinn hafi ekki orðið var við þetta því óþægindin sem fylgja þessu hljóta að hafa verið talsvert mikil,“ segir Rupal Morjaria einn augnlæknanna í teyminu. 

Konan hafði ekki farið í reglubundið eftirlit til augnlæknis í talsverðan tíma. Augnlæknar hvetja fólk til að fara reglulega í skoðun til augnlæknis.   

Þess má geta að konunni líður mun betur í auganu í dag.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert