Níu ára gamall drengur er á meðal þeirra sem létust um helgina í skotárásum í Chicago. Alls voru 56 skotnir frá föstudagskvöldi til mánudagsmorguns í borginni, en skotárásir eru þar daglegt brauð í nokkrum hverfum.
Drengurinn lést þegar hann sat um borð í bíl með 31 árs gömlum manni. Annar bíll keyrði upp að bílnum, og byssumaður hóf skothríð. Maðurinn fékk skot í andlit, bringu og bak og er þungt haldinn á sjúkrahúsi í borginni. Drengurinn lést samstundis við skot í bakið.
Alls létust ellefu í skotárásunum.
Skotárásir virðast vera algengari á sumrin í borginni, en þann 4. júlí síðastliðinn, á þjóðhátíaðardag Bandaríkjamanna, voru 101 skotnir og 14 hlutu bana af. Yngsta fórnarlambið var 13 ára gamalt.
Samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar eru flestar skotárásirnar tengdar eiturlyfjastarfsemi og gengjum.